Mjaðmalos í köttum

HD er stytting á  Hip Dysplasia eða mjaðmalos á Íslensku. Mjaðmalos virðist vera mun algengari vandi í köttum en áður var haldið.

Mjaðmalos er arfgengur sjúkdómur sem veldur því að grópin sem mjaðmakúlan hvílir í er mun grynnri en á heilbriðgum dýrum. Þar af leiðandi er kúlan lausari og fer að nuddast við grunnu grópina með þeim afleiðingum að brjóskið sem vanalega er á milli grópar og kúlu rýrnar og á endanum eyðist alveg. Þegar brjóskið er uppurið eru liðamótin bein í bein og er það er mjög sársaukafullt eins og menn með sama kvilla geta sagt okkur. Því miður getur líkaminn ekki endurnýjað brjósk, en í örvæntingu sinni til að laga vandann byrjar líkaminn að auka beinmassann, sem gerir vandann verri og sársaukafyllri.

Mjaðmalos í köttum

Eðlishvöt katta til að sýna undir engum kringumstæðum sársauka er afar sterk og því í lang flestum tilfellum getur köttur sem er með alvarlegt mjaðmalos gengið um og stokkið án þess að haltra eða sýna önnur veikleikamerki. Þegar losið er orðið verulega slæmt fara þeir að ganga um hægar og forðast stökk en mjög sjaldan haltra.

Greining á mjaðmalosi í köttum er frekar nýtt en þó vel þekkt í hundum. Tilrauna verkefni fór af stað í Svíþjóð árið 2000, svo í Júní 2010 varð möguleiki fyrir aðra í heiminum að taka þátt í þessu heilsufarsverkefni, þar á meðal Íslendinga.
Lesið nánar um heilufarsverkefnið á PawPeds.

Greining með röntgen myndatöku

Mjaðmalos er greint með röntgen myndatöku sem síðan er send til sérfræðings í Svíþjóð sem les úr henni. Misjafnt er milli dýraspítala hvað kostar að láta mjaðmamynda kött og því viturlegt að gera verðkönnun. Að láta lesa úr myndunum kostar 140 sænskar krónur, séu fleiri kettir myndaðir samtímis þá er ódýrara fyrir kött 2, 3, 4 og svo framvegins, eða 105 sænskar krónur.  Verðin miðast við að notað sé eyðublað frá PawPeds og samþykkt sé að niðurstöðurnar séu birtar í PawPeds gagnagrunninum.

Útskýring á niðurstöðum úr rannsókn

  • Normal: góðar heilbriðgar mjaðmir
  • Borderline: ekki alveg fullkomin uppbygging en heldur ekki mjaðmalos
  • Grade 1: milt mjaðmalos
  • Grade 2: mjaðmalos
  • Grade 3: alvarlegt mjaðmalos

Sænski sérfræðingurinn heitir Lars Audell, hann fær myndirnar sendar til sín (heimilisfangið hans er á eyðublaðinu, best er að láta dýralækninn senda myndirnar). Þegar hann hefur lesið úr myndunum skrifar hann niðurstöðuna á eyðublaðið og sendir það til HD heilsufarsritara PawPeds, ritarinn sendir þér niðurstöðurnar í tölvupósti en birtir þær ekki fyrr en 60-90 dögum síðar á vefsíðunni, svo ræktendur hafi tækifæri til að segja kettlingar eigendum frá niðurstöðunum áður en þær eru kunngjörðar fyrir almenningi. Þú færð svo upprunalega eintakið af eyðublaðinu sent í pósti frá heilsufarsritaranum.
Nánari útskýringar um hvernig á að mynda köttinn er að finna inná PawPeds.

Ræktendur athugið

Ekki er mælt með að taka ketti greinda með HD úr ræktun, þetta er það nýtt fyrirbrigði að það gæti skemmt stórlega stofninn að hætta að nota þessi dýr.

Sýnum ræktendum þolinmæði, það tekur tíma og peninga að mynda dýr með tiliti til HD. Við þurfum að byrja á því að komast að því hvaða ræktunardýr eru með HD og sjá hvernig best er að vinna úr því, meðan svona fáir eru prófaðir gætu öll ræktunardýrin þess vegna verið með mjaðmalos og án þeirra er enginn Maine Coon. Förum varlega og sýnum aðgát í nærveru sálar, þeir sem hafa nú þegar látið mynda dýrin sín eru að vinna að bættum stofni og horfa til framtíðar, berum virðingu fyrir því.

Texti eftir Vigdísi Andersen