Hvað þarf að varast á kattarheimili um páskana?

Á mörgum heimilum eru settar upp skreytingar fyrir páskana. Sumir skreyta með litlum páskaungum, þessum sem fylgja súkkulaðieggjunum, sumir hengja upp greinar með páskaskrauti á og margir setja páskaliljur í vasa og hafa á borðum.

Því miður getur þetta flest allt saman verið hættulegt fyrir elsku fjórfættlingana okkar.

Skrautið

Sem betur fer er nú ekki allt skraut hættulegt köttum en hafið varann á þegar það er sett upp, reynið að koma því fyrir þar sem kötturinn nær ekki til. Það sem ber eflaust mest að varast er allt sem hengur á spotta. Köttur sem innbyrðir spotta getur átt hættu á því að spottinn vefjist í görnum og þarf á aðgerð að halda til að ná honum út.

Liltu páskaungarnir sem koma frá súkkulaðieggjunum eru auðvitað ótrúlega skemmtilegt leikfang, en unginn er gerður úr fínum þræðum, sem einnig geta valdið óróleika í maga.

Margir setja birkigreinar í vatn og skreyta um páskana. Birkigreinarnar eru alls ekki eitraðar en þær geta valdið smá óþægindum í meltingarvegi katta.

Blómin

Páskaliljur sem og aðrar liljur eru eitraðar fyrir ketti. Þær valda nýrnabilun og dauða. Allir hlutar blómsins eru eitraðir, það þarf ekki nema eitt lauf eða smá nart í blómið sem veldur alvarlegri eitrun. Eftir að hafa nartað í blómið ælir kötturinn venjulega og verður síðan mjög þungur á sér á innan við tveimur klukkustundum. Uppköstin geta haldið áfram en kötturinn mun ekki borða neitt og heldur áfram að verða mjög þunglyndur.

Ýmsar tegundir af liljum

Hafðu samband við dýralækni strax ef þig grunar að kötturinn hafi komist í snertingu við blómið. Dýralæknirinn mun hefja meðferð strax því hreinsa þarf magann og þarmana. Hann gefur líklegast eitthvað til að fá köttinn til að æla eða örvar þarmana fyrir hægðir en einnig þarf kötturinn að fá vökva í æð. Köttinn verður að meðhöndla innan 18 klukkustunda frá því hann innbyrðir plöntuna því annars eru nýrnaskemmdirnar orðnar það miklar að kötturinn mun deyja.

Súkkulaðið

Súkkulaði er mjög eitrað fyrir ketti. Varist að hafa það á borðum ef engin er til að passa uppá að kötturinn komist ekki í það. Súkkulaði inniheldur efni sem kallast theobromine og er það til staðar í kakóbauninni. Því dekkra sem súkkulaðið er, því eitraðra er það fyrir köttinn. Köttur sem hefur innbyrt súkkulaði getur átt von á öndunarerfiðleikum, vöðva skjálfta og krampa og ætti að leita strax til dýralæknis.