|
Kynjakettir, Kattaræktarfélag íslands er félag kattaræktenda, kattaeigenda og áhugafólks um ketti. Kynjakettir eru meðlimir í FIFé, sem eru alþjóðasamtök kattaræktarfélaga. Í dag eru félagsmenn um 200. Aðalmarkmið Kynjakatta er að stuðla að kattarækt hérlendis með hag kattanna að leiðarljósi. Einnig er markmið okkar að stuðla að jákvæðu viðhorfi til katta og kattahalds. Kynjakettir sjá um ættbókaskráningu hreinræktaðra katta, halda sýningar og gefa út fréttablað tvisvar á ári, félagsmönnum til fróðleiks og skemmtunar. Stjórn félagsins sér um daglegan rekstur en í því felast ýmissleg störf. Hápunktur félagsstarfsins er án efa alþjóðlegu kattasýningarnar sem haldnar eru tvisvar á ári. Við hvetjum eindregið kattaáhugafólk að kynna sér sýningarnar og taka svo þátt í þeim. Verið óhrædd við að senda póst ef einhverjar spurningar vakna. Kynjakettir, Kattaræktarfélag Íslands Laugavegi 105 105 Reykjavík Ísland Skráningarstjóri: Kynjakettir, Kattaræktarfélag Íslands Djúpivogur 22 233 Reykjanesbæ
Gjaldkeri Kynjakatta, Kattaræktarfélag Íslands b.t. Jóna M. Sigurðardóttir Fannafold 227 112 Reykjavík
Símar: Gjaldkeri: 696 1177 Skráningarstjóri: 445 6060 Félagatal: 821 3703
Banki: 0513-26-405550 Kennitala: 460490-1549 Vsk númer: 31583
|