|
Skrifað af Vigdís Rut Andersen
|
|
Friday, 06 August 2010 |
|
Sagan:Ragdollinn á rætur sínar að rekja til Bandaríkjanna. Árið 1960 paraði kona að nafni Ann Baker Heilögum birman·saman við hvíta síðhærða læðu sem hét Josephine. Með kettlingunum sem undan þeim komu hélt hún áfram að þróa kynið og bætti meðal annars inní ræktunina Burmese og Persum. Árið 1969 var Ragdollinn viðurkenndur sem tegund af NCFA en ekki fyrr en árið 1993 af CFA. Þetta er því tiltölulega ný kattartegund sem hefur þó á skömmum tíma notið mikilla vinsælda. |
|
Síðast uppfært ( Tuesday, 17 August 2010 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifað af Vigdís Rut Andersen
|
|
Thursday, 24 June 2010 |
|
Kynjakettir Kattaræktarfélag Íslands vil minna ræktendur á æskilegar blóðprufur á ræktunardýrum fyrir pörun. Þennan lista er að finna í Ræktunar og Skráningarreglum FIFé . |
|
Síðast uppfært ( Tuesday, 17 August 2010 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifað af Húbert Nói Gunnarsson
|
|
Saturday, 28 January 2006 |
|
Sagan: Sphynx tegundin hefur komið við sögu hér og þar í gegnum aldirnar. Vitað er til þess að hún hafi skotið upp kollinum t.d. í Bandaríkjunum, Mexikó, Rússlandi og fleiri stöðum, en þó í litlum mæli. Tegundin hefur verið í ræktun frá því að götulæða nokkur (í Toronto, Kanada árið 1966) eignaðist hárlausa kettlinga, úr því goti kom einn fress og tvær læður. Læðurnar tvær voru sendar til Hollands og var þar maður, Dr. Hugo Hernandez sem tók við þeim og er hann því einn fyrsti ræktandi Sphynx tegundarinnar sem er þekktur í dag. |
|
Síðast uppfært ( Tuesday, 17 August 2010 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifað af Húbert Nói Gunnarsson
|
|
Saturday, 28 January 2006 |
|
Sagan: Síamskötturinn er ein af fáum tegundum katta sem geta talist upprunalegar. Síamskettirnir hafa verið þekktir í mörg hundruð ár og eru handrit sem fundust í Bangkok því til sönnunar. Þessi handrit eru talin vera frá því kringum 1350 og þar er að finna myndir af köttum sem bera litamunstur Síamskattanna eins og við þekkjum þá í dag. Í textanum í einu af þessum handritum, Kattaljóðum, er margoft minnst á þessa ketti og þeim lýst í smáatriðum. Þar er meðal annars að finna lýsingu á skapgerð þeirra og ber hún mikinn keim af þeirri skapgerð sem er einkennandi fyrir stofninn í dag. |
|
Síðast uppfært ( Tuesday, 17 August 2010 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifað af Húbert Nói Gunnarsson
|
|
Saturday, 28 January 2006 |
|
Sagan: Persinn er afkomandi síðhærðra katta sem riddarar Evrópu komu með heim frá Austurlöndum úr krossferðum sínum. Þessir síðhærðu kettir voru gefnir kóngafólki og náðu miklum vinsældum hjá frönsku hirðinni strax í lok sextándu aldar. Þegar fram liðu stundir bárust þessir kettir yfir til Bretlandseyja þar sem segja má að ræktun þessarar tegundar hafi byrjað. |
|
Síðast uppfært ( Tuesday, 17 August 2010 )
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 9 af 14 |